ALLT ANNAR HANDLEGGUR eftir Áslaugu Jónsdóttur

Þegar teiknari og rithöfundur verður fyrir því óláni að handleggsbrotna eru góð ráð dýr. Í þessu tilfelli varð óhappið kveikjan að myndasyrpu með 34 persónum, en leikmunir voru sóttir í ýmsar ruslakistur og hirslur á heimilinu. Við þessa flóru bættust síðan limrur til að túlka mismunandi persónur. Óvenjuleg og bráðfyndin bók!

Verð: 4.000,-

Ein athugasemd við “ALLT ANNAR HANDLEGGUR eftir Áslaugu Jónsdóttur

  1. Bakvísun: Allt annar handleggur | On the Other Hand | Áslaug Jónsdóttir

Færðu inn athugasemd