Guðmundur Andri Thorsson: Ótrygg er ögurstundin

Guðmundur Andri Thorsson er best þekktur sem rithöfundur, en Ótrygg er ögurstundin er fyrsta sólaplata hans með frumsömdum söngljóðum og lögum. Um árabil hefur Guðmundur Andri sungið og spilað með hljómsveitinni Spöðum, en hér kveður við annan og persónulegri tón.

Diskurinn hefur að geyma fjórtán lög úr smiðju söngvaskáldsins, sem syngur og leikur á gítar, og nýtur einnig aðstoðar nokkurra góðra vina og hljóðfæraleikara.