Henry David Thoreau: Walden

Henry David Thoreau. Walden. Reykjavík: Dimma, 2017

Elísabet Gunnarsdóttir og Hildur Hákonardóttir hlutu Íslensku þýðingarverðlaunin fyrir Walden eftir Henry David Thoreau. Forseti Íslands afhenti verðlaunin 3. mars 2018. Í umsögn dómnefndar um verðlaunaverkið segir:

„Walden eða Lífið í skóginum er eitt af höfuðverkum bandarískra bókmennta og segja má að verkið marki upphafsspor í vestrænni hugsun um náttúruvernd og samband manns og náttúru. Samvinnuþýðing Elísabetar Gunnarsdóttur  og Hildar Hákonardóttur er einkar vel heppnuð og fangar 19. aldar stemningu og tærleika þessa klassíska texta á sérlega vandaðri íslensku án þess að vera gamaldags. Orðgnótt og afar næm tilfinning þýðenda fyrir samspili tungumáls og efnis lyftir textanum upp á ljóðrænt svið þar sem hugblær og hrifnæmi náttúruunnandans lætur engan lesanda ósnortinn.

Eftirmálar og skýringar þýðenda bera vott um ígrundaða vinnu og einfaldar og fallegar teikningar Hildar gefa bókinni aukið gildi. Allur frágangur bókarinnar er til sóma og hún er ákaflega vandaður og fallegur prentgripur.“