Hér er á ferðinni blúskennd jazztónlist úr smiðju saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar. Á diskinum kemur fram nýr kvartett Sigurðar, en hann skipa auk Sigurðar framverðir elstu starfandi kynslóðar íslenskra jazztónlistarmanna, þeir Þórir Baldursson á Hammond orgel, Jón Páll Bjarnason á gítar og Pétur Östlund á trommur.
Á disknum eru níu lög, öll eftir Sigurð, en þau voru samin sérstaklega fyrir þessa hljómsveit og einstaklingana sem hana skipa. Tónlistin er blúskennd og byggir að nokkru leyti á gamalli hefð samruna jazz- og blústónlistar. Þess má geta að jazzgagnrýnandi Morgunblaðsins, Vernharður Linnet, skrifaði afar lofsamlegan dóm um fyrstu tónleika hljómsveitarinnar undir fyrirsögninni „geggjað stuð“.
Diskurinn var tekinn upp í hljóðveri FÍH í júní 2007. Hljóðritun annaðist Hafþór Karlsson. Útlitshönnun var í höndum Vilborgar Önnu Björnsdóttir og diskinn prýða ljósmyndir eftir Nökkva Elíasson.