The eleventh hour með Sigurði Flosasyni er gefinn út undir merki dönsku útgáfunnar Storyville.
Á diskinum eru ellefu ný lög hans fyrir jazzkvartett, en það er einmitt Kaupmannahafnarkvartt Sigurðar sem flytur efnið. Auk Sigurðar sem leikur á saxófón eru það liðsmenn úrí fremstu röð danskra jazztónlistarmanna, þeir Nikolaj Hess á píanó, Lennart Ginman á kontrabassa og Morten Lund á trommur. Diskurinn var tekinn upp í Village Recording hljóðverinu í Kaupmannahöfn 14. og 15. september sl. Dimma sér um dreifingu á Íslandi.