Jólaplatan Eitthvað fallegt er með þríeykinu Kristjönu Stefáns, Röggu Gröndal og Svavari Knúti.
Á plötunni eru bæði frumsamin og sígild íslensk jólalög, sem þessir frábæru tónlistarmenn túlka á sinn einstæða hátt. Meðal þekktra laga eru Hin fyrstu jól, Nóttin var sú ágæt ein, Hátíð fer að höndum ein og Jólin alls staðar.
Eitthvað fallegt er sannkölluð stofuhljóðritun með hugljúfum og heimilislegum blæ þar sem raddirnar njóta sín vel og þrenningin sér sjálf um undirleik. Högni Sigurþórsson hannaði útlit.
Verð: 2.500