Jon Fosse (f. 1959) er einn kunnasti samtímahöfundur Norðmanna. Verk hans hafa verið þýdd og gefin út á meira en 40 tungumálum, leikverk hans sviðsett meira en þúsund sinnum og Fosse unnið til fjölda verðlauna bæði í heimalandinu og erlendis. Allt frá fyrstu bók sinni, skáldsögunni Rautt, svart árið 1983, hefur Fosse helgað sig ritstörfum og sent frá sér skáldsögur, ljóðabækur, barnabækur og ritgerðasöfn ─ samtals nær 40 bækur.
Á Íslandi hafa þrjú af leikverkum hans verið sett á svið. Sumardagur var sýndur í Þjóðleikhúsinu 2006, unglingaleikritið Purpuri hjá leikhópnum Jelenu í Loftkastalanum sama ár og leikhópurinn Sómi þjóðar sýndi verkið Ég er vindurinn 2012. Einnig hefur Útvarpsleikhúsið flutt verk eftir hann. Hjá Dimmu hafa fjögur verka Fosse komið út á liðnum árum í þýðingu Hjalta Rögnvaldssonar.