Gerður Kristný: Forsetinn, prinsessan og höllin

Gerður Kristný. Forsetinn, prinsessan og höllin sem hvarf (hljóðbók). Reykjavík: Dimma, 2012.

Forsetinn ætlar til útlanda! Það á að krýna ný konungshjón og prinsessan, vinkona hans, bauð honum í veisluna. En í höllinni er eitthvað dularfullt á seyði. Höfundur les þessa eldfjörugu sögu.

Gerður Kristný er margverðlaunaður og afar fjölhæfur rithöfundur sem gefið hefur út bækur fyrir lesendur á öllum aldri. Forsetinn, prinsessan og höllin sem svaf er þriðja bók Gerðar Kristnýjar um þessar fjörugu persónur sem notið hafa mikilla vinsælda í bókum, hljóðútgáfu og á sviði Þjóðleikhússins.