Gítarleikarinn Andrés Þór er í aðalhlutverki á Bliki, en á diskinum er að finna jazzstandarda auk tveggja frumsaminna laga. Andrés hefur útfært lögin á skemmtilegan og ferskan máta ásamt félögum sínum í tríóinu, þeim Valdimar K. Sigurjónssyni kontrabassaleikara og Einari Scheving trommuleikara.
Blik er 2. sólódiskur Andrésar, hljóðritaður og útgefinn árið 2009.