K TRÍÓ

Píanóleikarinn Kristján Martinsson stofnaði K Tríó í ársbyrjun 2008, en ásamt honum skipuðu tríóið Pétur Sigurðsson bassaleikari og Magnús Trygvason Eliassen trommuleikari. K Tríó kom fram á Jazzhátíð Reykjavíkur sumarið 2008 og í september sama ár var það fulltrúi Íslands í samkeppni ungra norrænna jazztónlistarmanna í Kaupmannahöfn. Fór K Tríó með sigur af hólmi í þeirri keppni og gaf í kjölfarið út sinn fyrsta geisladisk, samnefndan tríóinu, sem hlaut afbragðs góðar viðtökur.  Annar diskur tríósins nefndist Rekaviður og kom út hjá Dimmu.

Á nýjum geisladiski með K tríói,  sem ber heitið Meatball Evening,  er frumsamið efni eftir Kristján Martinsson píanóleikara, en að þessu sinni skipa tríóið ásamt honum  Pat Cleaver á kontrabassa og Andris Buikis á trommur.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s