Margræðar og nýstárlegar tónsmíðar sem þessi magnaði píanaóleikari galdrar fram í rauntíma. Agnar Már Magnússon fer ótroðnar slóðir í orðsins fyllstu merkingu og spinnur spennandi og heillandi þræði sem gæla við eyru hlustandans. Tvöfaldur diskur sem hefur jafnframt að geyma spunamyndlist Högna Sigurþórssonar. Það er bæði staumur og iða í þessu verki, og spriklandi sporðaköst inn á milli.
Vandað, metnaðarfullt og frumlegt verk! Leiðbeinandi verð: 3.900,-