Sólarhjólið er myndskreytt ljóðabók eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson go Högna Sigurjónsson. Þarna ægir saman alls kyns furðuhlutum ásamt fólki, dýrum og kostulegum hugmyndum. Ljóð og myndir kallast á og koma sífellt á óvart. Aðalsteinn Ásberg og Högni Sigurþórsson hafa áður sent frá sér Kvæðið um Krummaling sem hlaut afbragðs góðar viðtökur.