Richard Brautigan. Hawkline-skrímslið – gotneskur vestri. Reykjavík: Dimma, 2018.
Richard Brautigan (1935-1984) var á meðal þekktustu rithöfunda Bandaríkjanna á sinni tíð. Hann samdi tíu skáldsögur og gaf út níu ljóðasöfn og eitt smásagnasafn á ferli sínum.
Hawkline-skrímslið var fimmta skáldsagan sem hann sendi frá sér og er á margan hátt einstök í höfundarverkinu þar sem hún er skopstæling á hinni vinsælu bókmenntagrein vestranum. Tveir atvinnumorðingjar eru ráðnir til að ganga milli bols og höfuðs á skrímsli sem hefur lagt undir sig Hawkline-setrið, en þar búa líka hinar gullfallegu systur, sem nær ógerningur er að þekkja í sundur.
Þórður Sævar Jónsson íslenskaði.