Tveir samhljóma geisladiskar með 24 jazzsönglögum úr smiðju tónskáldsins Sigurðar Flosasonar og ljóðskáldsins Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar.
Hér er um að ræða stærsta einstaka framlag til sunginnar íslenskrar jazztónlistar frá upphafi vega, um 100 mínútur af fjölbreyttri tónlist, sprottinni úr íslenskum jarðvegi en með alþjóðlegum blæ.
Kristjana Stefáns flytur öll lögin ásamt Jazzkvartett Sigurðar Flosasonar. Auk Sigurðar sem leikur á saxófón skipa kvartettinn Eyþór Gunnarsson á píanó, Pétur Östlund á trommur og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa.