Safn 14 jazzsönglaga sem Sigurður Flosason hefur samið við ljóð eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson. Lögin eru af samnefndum geisladiski, en hér birtast ennfremur upplýisngar um lög og ljóð. Þetta nótnahefti kallast á við Hvar er tunglið?
Verð: 2.490
Krúsilíus og fleiri barnasöngvar
Öll vinsælu barnalögin sem Anna Pálína og Aðalsteinn Ásberg gáfu út á geisladiskunum Berrösssuð á tánum (1998) og Bullutröll (2000) í aðgengilegum útsetningum Gunnars Gunnarssonar. Ljóð og lög fyrir alla fjölskylduna.
Meðal efnis: Bland í poka, Kónguló, Bullutröll, Hvínandi vindur, Sjö níu þrettán, Krummavísur, Drippedí-dripp, droppedí-dropp …
Verð: 2.000
24 íslensk jazzlög eftir Sigurð Flosason og Aðalstein Ásberg Sigurðsson sem Kristjana Stefáns söng á samnefndum geisladiski. Hér er komið til móts við þá sem vilja spreyta sig á nýtti og fjölbreyttri tónlist, hvort sem er í námi eða á tónleikum. Ennfermur fjalla höfuncarnir um hvert einstakt lag og greina frá tilurð verksins í heild.
Verð: 2.000
18 blúsuð jazzlög eftir Sigurð Flosason sem komið hafa út á geisladiskunum Bláir skuggar og Blátt ljós. Lögin nýtast bæði lengra og skemmra komnum, en ættu meðal annars að vera kærkomin viðbót fyrir samspilskennslu í tónlistarskólum. Til að auka notagildi er hvert lag skrifað út í g-lykli og f-lykli, en auk þess tónflutt fyrir Bb og Eb hljóðfæri.
Verð: 2.500
Nótnahefti með tónsmíðum Sigurðar Flosasonar. Öll lögin af plötunum Gengið á lagið,Gengið á hljóðið og Leiðin heim, auk ýmissa annarra laga sem birst hafa á öðrum plötum, m.a. af diskinum Dark thoughts. Auk nótnaútgáfu laganna fylgja hugleiðingar höfundar um lögin og tónsmíðar almennt.
Verð: 2.500