Mór

Hljómdiskurinn Mór telst vera sjöunda sólóplatan Agnars Más Agnarssonar. Hér er leikið á þjóðlegum nótum þar sem flest laganna eru íslensk þjóðlög í nýjum útsetningum Agnars. Auk þess eru á diskinum tvö frumsamin lög.

Auk Agnars sem leikur á píanó, leika þeir Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Matthías Hemstock á trommur. Þeim til fulltingis er síðan blásarasveit, skipuð Stefáni Þór Bernharðssyni á horn, Frank Hammarin á horn, Asbjørn Ibsen Bruun á horn og Nimrod Ron á túbu.