Sögusagnir: Þrjú tímamótaverk og einu betur er titill á nýútkominni bók eftir Jón Karl Helgason. Verkið fjallar um skáldverk sem varpa áhugaverðu ljósi á eigið eðli, tilurð sína eða viðtökur. Hefð er fyrir því að kalla þessi verk sjálfsögur á íslensku en Jón Karl kynnir fleiri hugtök til leiks, svo sem sögusagnir og sjálflýsandi bókmenntir. Í Sögusögnum er sjónum einkum beint að þeim þremur skáldum sem marka sjálfsöguleg tímamót hér á landi. Þetta eru þeir Sigurður Nordal með leikritinu Uppstigningu (1945), Elías Mar með skáldsögunni Eftir örstuttan leik (1946) og Gunnar Gunnarsson með skáldsögunni Vikivaka (1948). Síðasti kafli Sögusagna er helgaður skáldsögunni Turnleikhúsinu (1979) eftir Thor Vilhjálmsson og tengslum hennar við póstmóderníska fagurfræði.