Þessi sígilda og vinsæla saga eftir þýska metsöluhöfundinn Otfried Preußler er komin út í nýrri þýðingu Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar.
Rummungur ræningi kom fyrst út á íslensku fyrir hálfri öld og hefur lengi verið með öllu ófáanleg. Ævintýri Kaspers og Jobba hefjast þegar Rummungur ræningi stelur kaffikvörninni hennar ömmu. Vinirnir tveir ætla að handsama ræningjann og endurheimta kvörnina, en það reynist þrautin þyngri.
Falleg, litprentuð afmælisútgáfa!